Setjið maldonsalt og olíu á heita pönnu. Kjúklingurinn settur á pönnuna og meira maldon yfir sem og salvían. Laukurinn skorinn fínt og steiktur, settur við hlið kjúklingabitanna. Kryddað yfir allt og sítrónubörkur yfir. Ekki síðra að leyfa síðan að standa í sólarhring í kæli. Sítrónuvökvi, spínat og hnetur yfir og síðan fært í ofn eða pott og látið malla í 40 mínútur. Gæta að vökvinn fari ekki allur, bæta við vatni ef sósan er að verða of þykk. Borið fram með soðnu bulgur (eða byggi eða kúskús).
http://sigurdurarni.annall.is/
Næringagildi per skammt