Takið himnur og sinar af lifrinni og skerið hana í strimla.
Hrærið saman olíu, sesamolíu, sojasósu, hvítvínsedik og sykur.
Skerið gulrætur og sykurbaunir í strimla. Setjið út í sjóðandi vatn og sjóðið í 1-2 mínútur
Sjóðið eggjanúðulur skv. leiðbeiningum á pakka. Ristið sesamfræ á þurri pönnu. Látið til hliðar. Snöggsteikið lifrina á teflonpönnu í 1-2 mínútur hvorum megin. Geymið.
Setjið núðlur, gulrætur, sykurbaunir, vorlauk í strimlum og fínsaxaðan chilipipar á pönnu. Hellið kryddleginum yfir og hitið. Rífið jöklasalatiðniður og bætið út í. Hitið í augnablik. Kryddið með salti og pipar. Setjið lifrina ofan á og stráið sesamfræjum yfir.
Kaloríur49825%
Sykur2g2%
Fita19g27%
Hörð fita5g25%
Salt0g0%
Næringagildi per skammt
Stjörnugjöf:
Vínráðgjafar mæla með þessu víni með tilteknum rétti:
Sunrise Cabernet Sauvignon
Tegund: Rauðvín
Land: Chile
Lýsing: Hentar með öllu kjöti, pastaréttum og ostum.
Hefur farið sigurför um landið undanfarin ár og ekkert lát virðist vera á vinsældum þessa frábæra víns.