Hitið olíu í potti. Saxið laukinn og mýkið í olíunni. Kljúfið kardimommur og bætið muldum fræunum út í ásamt kanil, túrmerik, söxuðu lárviðarlaufi og pipar. Látið malla í eina mínútu.
Hellið vatninu af grjónunum, bætið þeim út í pottinn og hrærið í eina mínútu. Hellið kjúklinasoði yfir og hleypið upp suðu. Hitið ofninn í 200°C, látið álpappír eða lok yfir pottinn og inn í ofn í 15 mínútur.
Setjið eggin í sjóðandi vatn og sjóðið í tíu mínútur. Takið skurnina af eggjunum og saxið smátt. Roðflettið fiskinn og beinhreinsið og skerið í strimla. Setjið þá út í grjónin ásamt söxuðum eggjum. Leggið álpappír eða lok yfir og hitið í 5-7 mínútur í viðbót í ofninum. Saxið steinselju yfir réttinn áður en hann er borinn fram.
Kaloríur30015%
Sykur1g1%
Fita6g9%
Hörð fita1g5%
Salt0g0%
Næringagildi per skammt
Stjörnugjöf:
Vínráðgjafar mæla með þessu víni með tilteknum rétti:
Sunrise Chardonnay
Tegund: Hvítvín
Land: Chile
Lýsing: Gott með skelfiski og fiski með mildri sósu.
Eitt mest selda hvítvín á landinu í dag.